fimmtudagur, september 29, 2005

klukkuð, hljómar ískyggilega líkt klikkuð...

1. ég er með sjúklega þráhyggju á að það má ekki hrista pepsíð mitt, þetta er ein af þeim ástæðum sem fá mig til að blána og roðna og rjúka útum eyrun á mér! mín ráðlegging; ekki láta á það reyna, aldrei!

2. ég á mér enga martröð verri en þá að vakna einn daginn, og vera eins og allir hinir, skera mig ekki úr, þetta hefur verið kallað athyglissýki frá því að ég komst á gelgjuna, en svo fattaði ég að besta aðferðin við að halda þessu við er að hætta ekkert á gelgjunni, það hefur gengið ágætlega hingað til, ég ætti kannski að sækja um í þessa nýju útgáfu af guinnesbókinni, sem eina manneskjan sem hefur enst í 14 ár á gelgjunni...?

3. ég skipti um rithönd eftir því hvaða eva ég er.

4. ég er með fáránlega dellu fyrir að skoða fólk á netinu, ég googla alla sem ég kynnist, (sérstaklega gaman að googla ameríkanana) ég get eytt fleiri klukkutímum í að skoða svona vinasíður eins og hi5 eða deitsíður, ég er skráð með einhverjum fáránlegum nöfnum inná fjöldann allann af svona síðum, bara til að skoða fólkið þar og myndirnar af þeim.
nb. ég hef fundið helminginn af ykkur sem lesa þetta inná þessum síðum líka ;)


5. í meira en helmingi þeirra tilvika sem ég svara ekki símanum, þá er það vegna þess að ég nenni ekki að tala við viðkomandi, eða bara fólk almennt, ég elska að ég geti slökkt á hringingunni á meðan síminn hringir, þá veistu allavegana ekki að ég skellti á þig...

ég klukka Kötu og Amöndu (ein síða en fimm staðreyndir hvor),Inga Björn, Ástu frænku og Greiðu litlu!!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

What price the moon?
In a startling admission, NASA chief Michael Griffin told USA Today's editorial board that the manned space shuttle and International Space Station projects have been misguided for decades.
Hey, you have a great blog here! I'm definitely going to bookmark you!
I have a discount web hosting site. It pretty much covers discount web hosting related stuff.
Come and check it out if you get time.. Thanks.

12:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég á ekki svona blogsíðu, en myndi engin nenna að lesa hana.. þannig að ég ætla að hunsa þessa klukku. en ég skal setja hérna einhverja hluti.

1. ég er búin að vera læra allan sólhringinn nánast.
2. ég á að vera fara á námshelgi á Bifröst.
3. en þar er ég í meistarnámi.
4. en þegar ég vaknaði í morgun, þá ældi ég og gubbaði.
5. og það lítur út fyrir að ég sé ekki að fara á bifröst.

vonandi er þetta nóg fyrir þig eva mín..

7:29 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Lemdu mig i hausinn med ponnu og kalladu mig Yakagutji Swakapeli

Thu veist hvernig ad eg er thegar ad thad kemur fyrir ad thad er "ovart" slokkt a hljodinu i simanum thinum :D.. eg veit ad siminn blikkar thannig ad eg hringi bara thangad til ad thad svarar.. hef oftar en einusinni lenti i thvi ad vera buinn ad gleyma thvi hvad eg aetladi ad segja eftir ad vera buinn ad hringjai halftima :/

11:49 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home