sunnudagur, ágúst 21, 2005

Ofurhetjan

enn einu sinni, sonur minn er furðulegur, hann er búinn að láta eins og brjálæðingur í allan dag, hoppandi á milli sófa hrópandi "ég er ofurhetjaaaa" og í annað hvert skipti koma einhver bardagahljóð eða "búmm búmm" beint á eftir, hann röflar eitthvað samhengislaust um skikkjur og það að berjast við vindinn fyrir mig, ég hef ákveðið að kalla hann badda snæ núna, ég veit ekki hvort hann hefur ómeðvitað ákveðið að ganga í hlutverk snæsins eða hvort við erum að tala um einhvern ættgengan skynvillusjúkdóm... vona að hann sé að taka við af badda samt frekar...

þetta var góð helgi, fyrir utan það að vera fárveik var hún fín, fyrir utan það að hafa misst af öllu, þá meina ég öllu á menningarnæturdagskránni, þurft að labba langar leiðir í mestu ausandi rigningu sem um getur í sögu íslands, og það að hafa verið að keyra fólk heim í 3 tíma, þá var hún góð :)
mí happy!

kallinn minn heitir samt hér með prinsessan á bauninni...

við héldum brilljant quesadillu og seviche partý á laugardaginn, 12 manns í mat, og það sem er enn betra, allir saddir og sáttir... held ég... vona ég...

því miður beraði ég mig ekkert um helgina, terry/prinsessan á bauninni þvertók fyrir að ég færi í flasspilsinu mínu aftur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að segja honum að ég væri búin að sauma það saman, og að það teldist ekki með því að ég djammaði ekkert í því, varla neinn sá mig, en tískuprinsessan tók það ekki í mál, og já ég veit hvað þið viljið segja, hvað er orðið um evu þega hún er farin að láta einhvern kall stjórna því í hvað hún klæðir sig?
ég tek þetta til athugunar...

ég er þreytt, sjúskuð og lasin, en ef að mamma leyfir mér þá set ég inn soldið skemmtilega sögu hér á morgun, málið er bara það að það er ekki mín saga svo ég verð að fá leyfi til að birta hana...

lóa fer í fyrramálið, knús og koss og góða ferð beibí, lafja
tiff

4 Comments:

Blogger eva dögg said...

sko!! hann stendur sig nebbla mjööög vel í að vera prinsessan á bauninni, og jafnvel betur en þú...

þannig að...

hvað er annars að þegar mann dreymir að maður sé á flótta undan vini sínum í dýragarði, og þarf að vaða yfir drullugan andarpoll þar sem einhverjir kallar í vöðlum eru að spila golf, og fara svo yfir girðingu og inná svæði þar sem górillur og naut eru saman á svæði... og öll á harðahlaupum...
sjísúss
ég held ég drífi mig í þennann heilaskanna sem maður þarf að fara í fyrir flugið bara...

10:03 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Thu matt buast vid miklu ad viktor orra, mundu bara ad hlusta a hann um leid og ad hann laerid ad tala almennilega.

Ertu vissum ad terry heiti ekki i rauninni terriet ?! og se i rauninni kvennmadur ad flyja innbrots akaeru i bretlandi eftir ad hafa thvingad ser ingongu i hus nagranna sins bundid hann nidur og tekid til heima hja honum og med thessu valdid honum obaetanlegum salraenum skada sem a endanum mun leida til thess ad hann gerist feministi?!

Draumar eva.. mer finnst ad thu eigir ad fara i thetta til thess ad vita hvort ad thad er oruggt fyrir mig ad fara i thetta eg hef aldrie treyst myrkrinu... you never know who is hiding in it..

10:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Lena og Eva ef ad thid farid ekki ad senda mer email tha klippi eg a askrift ykkar sem systur!!!
Og iffany eg er buinn ad kaupa draslid fyrir thig a eg ad senda thetta til thin eda heim ? :/
og hvad a madur eiginlega ad skrifa a postkort til ad thad fari a rettan stad.. thetta kerfi er jafn flokidfyrir mer og brefdufur.. hvernig fundu thaer alltaf rettan stad til ad fara a ? brefdufur er an efa einn skuggalegasti hlutur i heimi.. va hvad lifid verdur audvelt thegar ad madur getur bara sent hluti i gegnum email :/

6:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Thad kallast ekki ad senda mail thegar ad thu forwardar brondurum og myndposti sem ad thu fekkst sendan!! Og 2 linur i flokkast ekki undir email nema ad thu sert ad svara spurning... kanntu ekkert?!

11:01 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home