þriðjudagur, júlí 05, 2005

Mmmmm.... góð pizza!!
sonur minn var að koma frá pabba sínum, og sá að mamma sín hafði notað tækifærið og fengið sér dominos pizzu á meðan, því ég vissi að hann fengi hollan heimilismat hjá ömmu sinni...
þannig að um leið og hann kom inn þá rauk hann á kassann og vildi pizzu, en málið er að þetta var red hot chili pizza, hann byrjaði á að koma til mín og láta mig plokka alla paprikuna af, ekki laukinn nota bene, svo settist hann við borðið sitt og byrjaði að borða hana, það fyndna við þetta var það að þanna situr hann og talar við sjálfan sig og segir "mmm.. góð pizza" á milli þess sem það koma ýmis kokhljóð og blástur því greyið er að kafna því hún er svo sterk... hehe, hafiði nokkurntíman kynnst svona þrjósku hjá mér...?
hann er búinn með pizzuna, og er farinn að rústa öllum púðunum og pullunum úr stofusófanum því hann týndi víst járnsmiðnum í honum, það er nýjasta áhugamálið, járnsmiðir, því það er einhver faraldur í gangi, koma inn nokkrir á dag og labba á veggjunum hjá mér, þangað til að viktor orri kemur auga á þá og fer að leika sér með þá, ég er hætt að henda þeim út, því að hann er alveg þvílíkt upptekinn af þessu nýja áhugamáli og ég vil ekki skemma það... makes u think, hvað verður um svona karakter þegar hann kemst á gelgjuna...?

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

EG er svo stoltur af honum.

synist hann vera ad spjara sig agaetlega thratt fyrir thad ad eg se ekki tharna til thess ad veita honum leidsogn i thvi hvernig a ad skapa laeti og skemma hluti.. thu veist ad eg neydist til thess ad koma heim med fyrsta flugi ef ad thu ferd nu ad segja thad ad drengurinn se ordin.. .. "stilltur"

8:01 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hann er bara líkur mömmu sinni!!! ;)

5:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

HMM kannski ad eg fari bara ad gera adra vefsidu af upphafssidunni minni ef ad thu ferd ekki ad blogga eitthvad!!! ;P

6:20 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Comment :) Sjáðu ég les þetta. Bara nenni aldrei að commenta..

5:42 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

haha Orri er algjör krúsí rúsí :-) Sakna ykkar, var að koma heim frá San Francisco :-D

2:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég hlýði bara og posta comment þótt ég hafi ekkert að segja...

10:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home