sunnudagur, maí 22, 2005

ok
Sko, þetta síðasta blogg var svona eins og falski vorboðinn, þið vitið, þegar trén halda að það sé komið sumar og svo er ekkert komið sumar, greyin fara að blómstra og alles, svo bara frýs allt saman, og allt dautt!
allavegana, batnandi mönnum er best að lifa, ég vona að það eigi við um konur líka...
Ég er byrjuð í nýrri vinnu, og ég er ótrúlega mikil svona "merkjamanneskja" þá í þeirri meiningu að ég er svona eins og geðsjúklingarnir sem að halda að guð sé að tala við þá, ég held sko að allt sé skilaboð til mín, ah, yeeees i´m phsyco, but i sweeear all the voices in my head mean no harm... ahumm
og í þessari nýju vinnu er ég að fara að selja snyrtivörur, eins gott að vera ekki með neikvæða umfjöllun um það sem ég á að fara að selja, nema hvað, svaka stuð á föstudaginn þegar allar vörurnar komu, raða upp og skoða, ég er eins og lítill krakki sem fékk alltíeinu fullan nýjan dótakassa til eigin afnota, alveg að missa mig í gamaninu, smellti á mig þessu fína meiki og alles, geggjað fín, uppfull af ótrúlega sannfærandi sölusetningum, hvað haldiði, svona um kvöldmatarleytið byrjar mig að klægja, og það versnar og versnar, þangað til að ég fór heim og þreif mig í framan, þá missti ég mig í kláðanum í andlitinu, önnur kinnin á mér orðin upphleypt og hrjúf, og rauð eftir allt klórið, augun rauð og full af tárum, og lítil útbrot útum allt, góðan daginn, er ég ekki bara með þetta líka fallega ofnæmi fyrir þessum vörum!!! Munduði ekki stökkva til og versla meik af manneskju sem er öll upphleypt og rauð í framan...ahmm i don´t know... a sign or a phsyco?

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

held ad thad fari bara ottalega mikid eftir thvi hvad ther finnst fallegt..

3:54 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home