þriðjudagur, maí 31, 2005

hún á ammalíí dag...
Viktor Orri átti ammli í gær, en ég ætla ekki að halda uppá það fyrr en á laugardaginn því að mamma var á einhverju finna-sjálfa-sig-námskeiði, og hún á ammali í dag svo að það verður svona um leið fyrir hana.
Sko, í morgun, þá skrapp ég í ræktina, og svo á leiðinni heim datt mér í hug að kaupa eina rós handa mömmu, rauða sko, og eina frá gorma litla, svo hef ég líka stundum gefið henni einha fyrir hönd pabba, því hann var alltaf með í öllu, þá hringdi Stebbi og ég spurði hann hvort að ég ætti ekki að kaupa eina frá honum líka, jújújú, auðvitað, þá þurfti ég að láta öldu vita að mér seinkaði aðeins, þannig að ég spurði hana í leiðinni hvort ég ætti að kaupa eina frá henni líka, auðvitað, svo endaði með því að ég var að tala við ástu frænku, og hún stakk uppá að gefa henni 48, því hún er 48 í dag, brilliant hugmynd, svo ég fór að hringja útum allan bæ að safna liði í rósavönd, svo fór ég alla leið uppí mosfellsdal þar sem þeir rækta rósirnar að kaupa, hehe, og mamma var þvílíkt hissa þegar hún sá þennann stærsta blómvönd ever, frá næstum 40 manns, svo var sko restin frá pabba ;)
Gormur litli er í kojunni sinni, þvílíkur töffari, ég vona að hann detti ekki frammúr :s

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home