föstudagur, nóvember 18, 2005

aumingja ég

ég vorkenni sjálfri mér mjög mikið núna, ég er ekki búin að fara útúr húsi síðan á mánudaginn...

sko, það tækist þetta engum nema mér, ég er tuttugu og fimm ára nóta bene, og ég er búin að næla mér í einhvern sjúkdóm sem að fólk fær ekki fyrr en það er orðið sextugt! pabbi sagði oft við mig að ég ætti að lifa hægar, ég yrði búin að öllu fyrir fertugt með þessu áframhaldi, en kommon, ég hélt hann ætti við ferðalögum og námi og djammi og fjöri, ekki sjúkdóma, ég ætti kannski að fara að láta tékka á kólestrólinu við tækifæri...
nú verð ég að sætta mig við það að liggja í rúminu að minnsta kosti frammað mánaðamótum, ég hef ekki verið svona dugleg að lesa skólabækur síðan...
síðan..
(rifj upp-rifj upp-brak-brestir-hugs ógeðslega fast-doink!)
ALDREI!
hversu súrt er það? ég hef aldrei lesið svona mikið, af skólabókum, jújú, ég las harry potter, hann gerist í skóla...
þetta eru örlögin, ég er viss um það, örlögin og pabbi er komin með einhvern díl, þetta gerðist allt í réttri röð, fyrst lendi ég í endalausri karla vitleysu, og allir gaurarnir sem ég er ýmist búin að vera að deita eða fokka í undanfarið lentu saman á djammi..
ok
this requires some explinations..
þetta er ekki eins slæmt og það hljómar, eins og þið vitið var ég að hitta cliff, þarna einhverntíman fyrir löngu, vil helst láta sem minnst fyrir því fara, en þegar ég hætti að hitta hann, þá hitti ég þennan gæja þarna sem er í einu postinu fyrir neðan, og ég, svoooo dugleg, er ennþá að hitta hann, en þarna í millitíðinni kynntist ég strák sem vinnur með terry, sem kom daginn sem terry fór, og hann er voða krúttlegur og allt það, bara soldið ungur... en ég er búin að vera að kreista uppúr honum upplýsingar, gegn voða fögrum loforðum um að fara með honum út að borða og svona, svo um daginn var ég að djamma með söndru, og sá ég þá ekki bara cliff og D vera að tala saman, ég panikkaði, reyndi að gera mig ósýnilega, (stutt síðan ég las harrý potter) en passaði samt uppá að sandra sæi allt sem framm fór á meðan ég gretti mig og kreisti, það eru allir hálf berrasaðir þarna inni og pottþétt enginn með neitt sem gæti verið svona invisibility clouge... daginn eftir var ég að tala við jenný, í þvílíkri geðshræringu sagði ég henni frá þessu, þá fór hún að spurja útí hann, já hann er með tattú á framhandleggnum... já, já... átti cliff þá ekki mynd af honum! damnit, þar fór sá möguleiki að þeir þekkist ekkert og hafi bara óvænt verið að tala saman á djamminu...jenný bauðst til að senda mér hana á meilið mitt, jebb, kúl, alltaf gaman að hafa myndir af sætum strákum á tölvunni sinni til að skoða á dimmum rigningardögum;) það tók svona viku, og þegar ég fékk helvítis myndina, haba haba, ekki bara D heldur annar sætur strákur... uhh, voða kannast ég við hann...var hún þá ekki af D og uppljóstraranum mínum!!
annað panikk attakk, það er kannski ekki skrýtið að ég sé komin með einhvern gamlingjasjúkdóm, tvö væg hjartaáföll á viku, ...ég lifi greinilega hratt...
D var á æfingu þannig að ég hringdi í uppljóstrarann, jú jú, þeir eru vinir, "ég er á leiðinni til hans núna"
e: "öööh... ekkert vera að nefna mig, né myndina, né neitt.. ööö WE NEVER HAD THIS CONVERSATION!!"
þetta var svona eins og í bíómyndunum þar sem er í rauninni boðið uppá tvær mismunandi atburðarrásir, þetta ár er búið að vera þannig, þá kemur súr spurning...af hverju í ósköpunum vel ég alltaf þá atburðarrás sem leiðir til vandræðalegra mómenta, engra svara og sprenginga?
af hverju er barbapabbi bleikur?
og hver skildi teletubbies eftir eina í heiminum?

svo (í frmahaldi af þessu fyrsta sem krafðist soldið langra skýringa af sökum lélegs bloggs, en þetta hérna skýrir þessa löku frammistöðu mína í bloggheiminum)
netið mitt aftengdist um daginn, ég get ekki skrifað afhverju á netið, því ég ætti á hættu að vera kærð 0r sum, en ég skal svara þessari spurningu, NEI, það er ekki því að ég borgaði ekki símareikninginn.

svo þriðja, verð ég fárveik og má ekki fara út, get ekki einu sinni þrifið eða breytt íbúðinni minni, eina sem ég má og get gert er að liggja uppí rúmi og lesa bækur! SKÓLABÆKUR!

allt er þá þrennt er, pabbi og örlögin hafa komið sér saman um að láta allt sem þau gátu gerast til að ég liggji yfir skólabókunum,

þumbs up!

ykkur tókst það!

(takið eftir því að þeim hefur greinilega líka tekist að gera mig endanlega geðveika fyrst að ég er farin að blogga til dáins fólks og örlaganna!!)
KRÆST

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert ÓTRÚLEG EVA!! hehe Vonandi batnar þér nú fljótlega... by the way... verð að fara að kynna þig fyrir heimalingnum mínum ;Þ
Jenný

2:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Eva, það endar með því að þú verður að skrifa á skáldsöguformi, (ég myndi reyndar örugglega lesa þá bók oftar en einu sinni annað en Dís eða Bridget Jones) ekki af því að maður trúi þér ekki heldur til að verða ekki kærð! Love oyu, láttu þér batna.
PS síðan hvenær hafa íslenskir strákar ekki áhuga á þér?!? Ætla samt ekki að birta mínar kenningar um ævintýrin þín opinberlega, þá gæti verið að þú kærðir mig ;)Eða hættir að tala við mig sem væri töluvert verra

6:10 e.h.  
Blogger eva dögg said...

hmm, það er regla númer eitt á blogginu mínu að það eru engar reglur um það hvað má segja!
en það er samt regla að það er bannað að þora ekki að tjá sig, þannig að kamilla, þú ert hér með gerð skyld til að segja/skrifa hvað þér liggur á hjarta!
pís át

8:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Haha æji eva mín.. hversu mikið auðveldara væri líf þitt ef þú værir bara lessa ;]

9:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hahahaha hahahahahah hahahaha, minntu mig eitthvertíman á það útskýra fyrir þér afhverju ég er að hlæja, já ég hef dottið oftar á hausinn en handalaus dreyfbílishlaupari nei ég er ekki geðveikur.. .. ..

12:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá, þetta er eitt af skemmtilegustu bloggum sem ég les..gaman að þér og gaman að lesa þetta :D, töfftöff:)

12:32 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig væri nú að fá update??? þú veist ég er með sjúkdóm í höndunum og get ekki lyft símtóli þannig að þú verður að tjá þig við mig hérna, þú skrifar líka skemmtilegar en þú talar... ekki það að þú talir leiðinlega, þetta er bara svo flott á rituðu máli...hehehe

10:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home